Íslenska

Ísl 102 • Ísl 103 • Ísl 202 • Ísl 203
Ísl 212 • Ísl 303 • Ísl 403 • Ísl 503
Ísl 603 • Ísl 613 • Ísl 623 • Ísl 633
Ísl 873 • Sta 191
Ísa 103 • Ísa 203 • Ísa 303 • Ísa 403

 

 

Bókalisti
Kennarar
Fjarnám
Athugið
Stílfræði
Hugtök
Um ritun
Krækjur

Hagnýtar upplýsingar

Verkefnaskil
Nemendur eiga að ljúka öllum smærri og stærri verkefnum til að fá að fara í lokapróf. Þó er hugsanlegt að í sumum áföngum þurfi nemendur einungis að skila ákveðnum hluta verkefna.

Dyslexia
Nemendur sem greindir hafa verið með lestrar- og skriftarörðugleika (dyslexíu) og aðrir nemendur með skynjunarörðugleika eiga rétt á:

  • lengri próftíma
  • að fá próf lesin inn á hljóðsnældur
  • að fá próf lesin fyrir sig
  • að fá próf með stærra letri
  • Aðstoð gæti einnig verið með öðrum hætti og færi þá eftir þörfum og óskum hvers og eins.

Dreifnám
Dreifnám (blanda af venjulegum kennslustundum og fjarkennslu) hefur verið til staðar í nokkrum áföngum í íslensku sem og öðrum greinum í FÁ. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni hluta verkefna sinna gegnum vef íslenskudeildar og með tölvupósti. Nemendum er ætluð ein kennslustund (60 mínútur) á viku til þessara verka í þriggja eininga áfanga en ein kennslustund (40 mínútur) á vikur í tveggja eininga áfanga. Mikilvægt er að verkefnum sé skilað á tilsettum tíma samkvæmt fyrirmælum á kennsluáætlun. Gætið þess að fara ekki fram yfir þann frest án þess að gera kennara grein fyrir málum.